Umframframleiðsla - Tómas Ævar Ólafsson
- Kilja
- 76 bls
- 12,9 X 19,8 cm
- ISBN: 9789935955388
Tómas Ævar Ólafsson er frá Akranesi en býr í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann lauk MA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands og leggur nú loka hönd á MA-próf í ritlist við sama skóla. Hann hefur vakið athygli fyrir dagskrárgerð á Rás 1, auk þess sem skrif hans hafa birst í bókmenntatímaritum, safnbókum og aftan á vínylplötum. Umframframleiðsla er hans fyrsta ljóðabók.
þú dregur fram óefnið
hún vegur það í hendi sér
það er léttara en hún bjóst við
kvíðinn er neysluvara
eins og allt annað
segir hún
kámugur og klístraður
brýtur hann sér leið inn í kjarnann
eins og veira
undan honum streyma áhyggjur
á færibandi
flakaðar og fullverkaðar
en það ert þú
segir hún
sem ræsir vélina
einn lítill neisti
getur vakið heila verksmiðju
rifrildi í næsta herbergi
opin vínflaska á stofuborði
ósvarað símtal