Þetta er ekki bílastæði - Brynjólfur Þorsteinsson
Þetta er ekki bílastæði - Brynjólfur Þorsteinsson

Þetta er ekki bílastæði - Brynjólfur Þorsteinsson

Regular price 1.999 kr 1.999 kr
  • Kilja
  • 60 bls
  • 12,9 x 19,8 cm
  • ISBN: 9789935946829
  •  

    Brynjólfur Þorsteinsson hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2019 fyrir ljóðið „Gormánuður“. Verðlaununum fylgir hann nú eftir með sinni fyrstu ljóðabók. Hér stígur fram nýr höfundur sem er óhræddur við að afhjúpa fáránleika hversdagsleikans með beittum húmor, frumlegri hugsun og litríku myndmáli. Þetta er ekki bílastæði er fjörugur óður til ímyndunaraflsins.

     

    VETRARKVÍÐI

     

    köngulær

    þekja tún

    hvítum vef

    á haustin

     

    og túnin verða skírnarlaug úr marmara

    eða eitthvað til að leggjast í dvala í

     

    kvíðinn fyrir myrkrinu

    ofinn úr silkiþráðum

     

    sem ég klæðist

    eins og eigin skinni

     

    skipti um nafn

    sef fram á vor