Urðarflétta - Ragnheiður Harpa Leifsdóttir

Urðarflétta - Ragnheiður Harpa Leifsdóttir

Regular price 3.899 kr 3.899 kr
  • Kilja
  • 55 bls
  • 12.9 X 19.8 cm
  • ISBN: 9789935969606

 

 

Fíngerð og dulmögnuð prósaljóð um náttúruna sem býr innra með okkur, viðkvæm augnablik, horfna skóga, uglur sem grípa nóttina, ástvini í handanheimi, eggaldin sem vex úr koki, kreppta hnefa, sár sem aldrei gróa, fljúgandi þakplötur, þeysandi halastjörnur og byltingar sem fæðast í móðurkviði. Urðarflétta er önnur ljóðabók Ragnheiðar Hörpu.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er rithöfundur og sviðslistakona. Fyrsta ljóðabók hennar, Sítrónur og náttmyrkur, kom út haustið 2019. Ragnheiður Harpa er ein Svikaskálda og hefur ásamt þeim gefið út ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd, Ég er fagnaðarsöngur og Nú sker ég netin mín. Skáldsaga Svikaskálda, Olía, hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021.