Brjálsemissteinninn brottnuminn - Alejandra Pizarnik
Fullt verð
3.299 kr
með VSK.
Sendingargjald reiknast við greiðslu.
- Kilja
- 110 bls
- 12.9 X 19.8 cm
- ISBN 9789935946874
Sígilt samtímaverk eftir argentínska ljóðskáldið Alejandra Pizarnik
Alejandra Pizarnik (1936-1972) er hálfgerð goðsögn í bókmenntum Rómönsku Ameríku. Hún var af austur-evrópskum gyðingaættum, samkynhneigð og féll ung fyrir eigin hendi. Lengi vel var hún nær óþekkt meðal almennings en í miklum metum í bókmenntakreðsum og hjá helstu rithöfundum álfunnar. Á síðustu árum hafa æ fleiri lesendur flækst í þéttofinn orðavef skáldsins sem einkennist af lokkandi dulúð, töfrandi málfari og innilegum samræðum við melankólíuna og myrkrið.
Brjálsemissteinninn brottnuminn er fyrsta úrval af ljóðum, prósum og smáprósum eftir Alejöndru Pizarnik á íslensku. Hermann Stefánsson þýðir og ritar eftirmála um ævi og verk skáldsins.