Máltaka á stríðstímum - Natasha S.

Máltaka á stríðstímum - Natasha S.

Fullt verð 3.899 kr 0 kr

  • Kilja
  • 68 bls.
  • 12.9 X 19.8 cm
  • ISBN 9789935966155

Máltaka á stríðstímum er frásögn manneskju sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr fjarlægð. Hennar eigin þjóð, Rússar, hervæðist og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og spurningar sem glímt er við í bókinni. Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Natasha S. er rithöfundur og þýðandi íslenskra bókmennta yfir á rússnesku. Árið 2021 ritstýrði hún bókinni Pólífónía af erlendum uppruna, ljóðasafni innflytjenda á Íslandi. Hún hefur jafnframt vakið athygli fyrir pistla og hugvekjur. Máltaka á stríðstímum er fyrsta bók hennar og fyrir hana hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2022.

Máltaka á stríðstímum er áhrifamikið verk, brýnt og einstakt í sinni röð. Það er frásögn manneskju sem fylgist með stríði í heimalandi sínu úr fjarlægð. Hennar eigin þjóð – Rússar – hervæðist og ræðst inn í Úkraínu. Andstaða höfundar við stríðsreksturinn vekur margslungnar tilfinningar og spurningar sem glímt er við í bókinni. Þrátt fyrir átakanleg efnistök einkennist framsetning af lipurð og djúphygli. Skírskotanir í íslenskan raunveruleika færa atburði stríðs í nýtt samhengi og draga fram sláandi andstæður. Mannskilningur höfundar nær þvert yfir þjóðerni, búsetu, reynslu og bakgrunn. Þá er verkið djúppersónulegt þrátt fyrir að inntak þess séu umfangsmiklar hörmungar á alþjóðavísu enda er ástarsögu, minningum og endurliti fléttað saman við af listfengi.“

Úr umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar